Nýju fötin keisarans
Título

Nýju fötin keisarans

Descripción
Keisari nokkur er óskaplega glysgjarn og sankar að sér fögrum munum og skrautlegum klæðum. Þegar ríki hans heimsækja tveir skraddarar, sem vefa undurfagurt efni þeirri náttúru gætt að vera ósýnilegt augum þeirra sem eru heimskir eða ekki stöðu sinni vaxnir, er hann ekki seinn á sér að grípa tækifærið. Saumamennirnir tveir eru hinsvegar óforskammaðir þorparar, sem vefa á tóma vefstóla og stinga gullinu og silkinu sem ætluð eru til fatasaumsins í sína eigin sekki. Enginn af þegnum keisarans – hvað þá hann sjálfur – geta séð fegurð vefnaðarins, sem vonlegt er. En enginn er hins vegar tilbúinn að viðurkenna meinta heimsku eða vanhæfi í starfi. Og nú stefnir í óefni. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
On public lists of these users
Este audiolibro no está ninguna lista
Detalles del producto
Editorial:
Título:
Nýju fötin keisarans
narrado por:
Idioma:
IS
ISBN Audio:
9788726238044
Fecha de publicación:
31 de marzo de 2020
Duración
14 min
Tipo de producto
AUDIO
Explicit:
No
Audiodrama:
No
Unabridged:
Sobre el autor:
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Nýju fötin keisarans" er eitt af hans vinsælli ævintýrum, og lifir jafnvel í talmáli, þar sem ýmis efni þjóðfélagsumræðunnar eru gjarnan nefnd "nýju fötin keisarans". Ádeila sögunnar er hárbeitt, en á sama tíma bráðfyndin, þar sem lesendur fylgjast með hverju fyrirmenninu á fætur öðru ganga í gildru svikahrappanna og gera sig að fífli.