Snædrottningin
Titel

Snædrottningin

Beschreibung
Fjölkunnugur púki smíðar hræðilegan spéspegil, sem hefur þá náttúru, að gera allt það sem gott er og fallegt afskræmt og ljótt. Í ljótum púkaleik brotnar síðan spegillinn og brotin þyrlast um allan heim og gera illt hvar sem þau lenda. Tvö af glerbrotunum smjúga inn í hjarta drengsins Karls, sem áður var ljúfur og góður piltur. Leiksystir hans, Helga, skilur ekkert í umbreytingunni og verður afskaplega sorgmædd. Vetrardag nokkurn bindur Karl sleðann sinn aftan í stóran og glæsilegan sleða. Á honum reynist Snædrottningin sitja, og kyssir hún drenginn kuldakossum svo hann gleymir öllu sem honum var áður kært. Helga litla leggur af stað út í heiminni í leit að vini sínum, en á leiðinni eru ýmsir hrakningar. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
Auf öffentlichen Listen dieser Nutzer
Dieses Hörbuch ist noch auf keiner Liste.
Produktdetails
Titel:
Snædrottningin
gelesen von:
Sprache:
IS
ISBN Audio:
9788726238068
Erscheinungsdatum:
1. April 2020
Laufzeit
1 Std 25 Min
Produktart
AUDIO
Explizit:
Nein
Hörspiel:
Nein
Ungekürzt:
Ja
Über den Autor:
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Snædrottningin" er eitt lengsta ævintýri hans og ægir þar saman hinum fjölbreyttustu sögum. Blóm og dýr hafa mál, greiðvikin konungsbörn koma til bjargar en galdrakindur og ræningjar eru á sveimi. Sagan hefur notið mikillar hylli og varð meðal annars Disney samsteypunni innblástur að teiknimyndinni sívinsælu, Frosin.