- Audiolibro
- 2020
- 33 min
- SAGA Egmont
Título
Skugginn
Descripción
Maður nokkur er á ferð í heitum löndum, þar sem sólin skín svo skært að vonlaust er að vera úti á daginn. Það er ekki fyrr en eftir sólsetur að borgin lifnar við og fólk fer á stjá. Á svölunum gegnt íbúð mannsins er þó undarlega líflaust, þó öll ummerki bendi til þess að þar búi dugmikill einstaklingur. Manninn fýsir mjög að kynnast þessum nágranna, en erfiðleikum virðist bundið að komast í tæri við hann. Kvöld nokkurt situr maðurinn á sínum eigin svölum og sér hvernig ljósið varpar skugga hans yfir á svalirnar á móti. Hann espar skuggann upp í að heimsækja nágrannann dularfulla og fræða sig um hagi hans. Hið undarlega atvik á sér stað að skugginn hverfur inn um dyrnar á móti og hætti að fylgja manninum. Honum verður sem von er hverft við, en með tímanum vex honum nýr skuggi og sá gamli gleymist. Þar til dag nokkurn, löngu síðar, að torkennilegur maður ber að dyrum. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. -
On public lists of these users
This audiobook is not on any list yet.
Detalles del producto
Editorial:
Autor:
Título:
Skugginn
narrado por:
Idioma:
IS
ISBN Audio:
9788726238259
Fecha de publicación:
1 de enero de 2020
traducido por:
Palabras clave:
Duración
33 min
Tipo de producto
AUDIO
Explicit:
No
Audio drama:
No
Unabridged:
Sí
Sobre el autor:
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Skugginn" er dimm og grimmdarleg saga, sem sækir ýmsa frásagnarhætti til hryllingssöguskrifa. Hið ókennilega tvífaraminni er leiðarstef sögunnar, auk þess sem hún fjallar um eitt kraftmesta aflið í lífi Andersens sjálfs, nefnilega skáldskapinn. Úr verður nokkuð nöturleg frásögn um hinar bókstaflegu skuggahliðar lífsins, sem fær hárin til að rísa.